glóa
10.08.2007 15:56:08 / gloa

ný síða

Eða auka síða svona 123.is/gloa

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 15:42:32 / gloa

Magnað

Það var ung og falleg stúlka sem var svo niðurdregin og hrygg að hún
ákvað að binda endi á þetta allt og fyrirfara sér með því að stökkva í
höfnina.
Hún stóð á hafnarbakkanum og þegar hún ætlaði að stökkva kemur til
hennar ungur sjómaður og spurði hana hvers vegna hún væri að gráta.
Hún sagðist ætla að fyrirfara sér. Honum fannst það synd og sagði við
hana að hún hefði mikið að lifa fyrir. "Skipið mitt siglir til Ameríku
á morgun, ef þú vilt skal ég lauma þér með. " Hann færði sig nær
stúlkunni og tók utan um hana og hvíslaði að henni," ef þú verður góð
við mig verð ég góður við þig".
"Já" sagði stúlkan "hverju hef ég að tapa? " Um nóttina laumaði hann
henni um borð í skipið og faldi hana í einum björgunarbátnum. Hann
færði henni annar slagið mat og drykk og í hvert skipti elskuðust þau
heitt og innilega.
Þrem vikum seinna var skipstjórinn á venjulegri eftirlitsferð og fann
hana í björgunarbátnum. Hann spurði hana hvað hún væri að gera þarna.
Hún sagði honum eins og var að sjómaðurinn væri að lauma henni til
Ameríku en í staðinn svæfi hún hjá honum. Þá sagði skipstjórinn:


"Þú hefur verið plötuð laglega núna, þetta er Herjólfur." :-)

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 15:34:32 / gloa

Sumargrill

Grilltímabilið í hámarki. Allir að grilla. Húsmæður gleðjast yfir því að þurfa ekki að standa yfir pottunum, því bóndinn sér um grillið. VEI!

Þannig gengur þetta fyrir sig:
Frúin verslar í matinn.
Frúin býr til salat, græjar grænmeti sem á að grilla, og býr til sósu.
Frúin undirbýr kjötið. Finnur til réttu kryddin, setur kjötið á bakka ásamt grilláhöldum.
Bóndinn situr við grillið, með bjór í annarri.

Lykilatriði:
Bóndinn setur kjötið á grillið!
Frúin fer inn, finnur til diska og hnífapör.
Frúin fer út, og segir bóndanum að kjötið sé að brenna.
Bóndinn þakkar henni fyrir, og biður hana um að koma með annan bjór á meðan hann tæklar ástandið.

Annað lykilatriði:
Bóndinn tekur kjötið af grillinu, og réttir frúnni.
Frúin leggur á borð. Diskar, hnífapör, sósur, salöt og annað meðlæti, ratar á borðið.
Eftir matinn gengur frúin frá öllu.

Mikilvægast af öllu:
Allir þakka BÓNDANUM fyrir matinn, og hversu vel HONUM tókst upp.
Bóndinn spyr frúna hvernig henni hafi líkað “frídagurinn”...
og eftir að hafa séð svipinn á henni, ákveður hann að það er ómögulegt að gera konum til geðs.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 15:48:25 / gloa

People

Þegar ég fór á síðuna í morgun voru heimsóknir dagsins 6... Ekkert komment.... Þegar ég fer svo núna eru þær 12... en ekkert komment. Minns langar að fá komment takk fyrir pent. Hanna sín er eina sem er að standa sig í þessu.. Takk 'skan

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 22:23:20 / gloa

............

Setti inn nokkrar myndir síðan um páskana... Set ábyggilega inn fleiri myndir á morgun og hinn þar sem ég og herra streptakokki höfum ákveðið að halda okkur heima hjá mömmu í nokkra daga. Lífið er yndislegt. Set svo inn hérna mynd af Draumnum okkar :)

 

jebb hann er fallegastur


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 10:10:24 / gloa

McDreamy

Var fyrir sunnan um helgina og ég og Hilla keyptum Hund af Írisi vinkonu!! Hann heitir draumur og er B-E-A-Utiful!! Vildi bara láta vita :) Allavegna reyni að setja inn nokkrar myndir af honum um helgina. Bendi samt á það að Hildur er búin að setja inn tvær á síðunni sinni.

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 09:54:32 / gloa

Já nú er allt að gerast!!

Ég er að koma suður á eftir og verð fram á sunnudag mánudag ef einhver hefur tíma til að hitta mig á þeim tíma þá má bara endilega hringja í mig :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 10:06:51 / gloa

Sælir

Það er svo gott veður að ég hata það að vera að vinna! Afhverju er maður ekki bara lítill, svona 5 ára eða eitthvað. Þá myndi ég leika mér úti allan daginn og ekki þurfa að hafa áhyggjur af neinu. B.T.W. Hverjum langar með mér í skóla á Bifröst í haust? Hmmm engir sjálboðaliðar? skrítið....

Var á Akurensis um helgina. Fór á kostum á föstudaginn og hef ákveðið að láta aldrei aftur neinn sjá mig svona. Sérstaklega ætla ég aldrei aftur í Samkaup við borgarbrautina. Eða taka taxa á Ak... Nibb ég læri sko af mínum mistökum og hef ákveðið að sleppa brennivíns bjórnum í örlítinn tíma. En Laugardagskvöldið var geðveikt! Mér var boðið í grill til Möttu í skógarhlíðina og svo fórum við á leiksýningu sem Hildur og Sunna voru að geyfla sig í. Klukkan tíu skelltum við Matta okkur svo í himnaríki.... Leaves tónleikar á Græna hattinum. MMMMMMMMmmmmmm ég elska bassaleikarann! grrrrr.... já en nóg um það! það er doldið vandræðalegt að slefa í vinnunni.

Inga pinga Ég saknaði þín um helgina hefði viljað hitta þig meira honey boney. Samt gott að kúra hjá þér mús :)

Takk fyrir mig.


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 23:53:51 / gloa

Á spáni er gott að djamma og djúsa

Jebb er að kenna Hildinni minni að tala spænsku þessu dagana þar sem við erum að pæla í því að fara heim til Malaga eftir áramót og rugla eitthvað í 6 mánuði. Finna okkur bara vinnu og solis. Okkur langar samt pínu líka að fara til englands, kannski til einhvers "smábæjar". Stella hvernig er leigan í milton kings? ;) Helduru að Mark geti ekki reddað okkur vinnu þar og íbúð ef við biðjum hann fallega? :) En allavegna er spennan að drepa okkur núna. Okkur langar svo mikið að gera bara eitthvað og byrja svo "kannski" að fullornast bara eftir eitt ár eða eitthvað og ákveða þá hvað við ætlum að gera við líf okkar. Hvað finnst ykkur? Einhver betri lönd í huga? Steina leós vil að við förum til ástralíu og ég er alveg til í það ef einhver borgar fyrir mig flugið.

 Annars ef þetta gegnur ekki upp hjá okkur þá flytjum við nú líklega á Neskaupsstað og ég fer í hárgreiðsluna og Hilla mín í skóla eða vinna.

Annað mál á dagskrá! Fokk orkusalan! Til hamingju þú hefur unnið þvottavél!! Nei annars í staðinn höfum við ákveðið að rafmagnsreikningur þinn er 24.000 hjá orkusölunni og 7.000 hjá Rarik. Bara næstum því fríkeypis að kinda kofann!!

 Annars er lífið ljúft í Odda. Höfum ákveðið  að fara bara í sturtu á morgnanna og maður vaknar miklu betur ef hún er köld, Börnin hennar Hildar eru bara í útigallanum inni og hverjum er ekki sama þótt það sé smá fituskán á leirtauinu! Auk þess þá eru kertaljós og nýju mokkasíurnar bara kósý! Það er sko ekkert mál að spara rafmagn.

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 16:00:51 / gloa

Hot Hot Hot

Mér er svo heitt í Sparisjóðnum á Bakkafirði að ég næ varla andanum. Hvar er viftan mín góða? Kem kannski með hana með mér næst þegar ég er send í útlegð.

Krakkar það eru alveg að koma páskar. Gullið mitt að koma eftir 3 daga

 

ciao


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 02:43:04 / gloa

Jó píbs

Komið fullt af myndum!!!! enjoy

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 11:22:09 / gloa

Valgerður Erla Óskarsdóttir

Fyrir ykkur sem búið á Þórshöfn og munið eftir henni Valgerði Erlu sem bjó á ytri-brekkum þá lenti hún í bílslysi 17 mars og liggur enn á gjörgæslu á landspítalanum í Reykjavík að ég held. Ég veit rosalega lítið annað en það að hún brotnaði illa á báðum fótum og er búin að fara í eina aðgerð. Henni er haldið sofandi ennþá held ég. Það er búið að gera styrktarsjóð fyrir fjölskylduna hennar. Hér er fréttin um það á Mbl.is

Ástvinir Valgerðar Erlu Óskarsdóttur frá Vestmannaeyjum en býr nú í Þorlákshöfn, sem lenti í alvarlegu bílslysi á Þrengslavegi laugardaginn 17. mars síðastliðinn og liggur nú á gjörgæsludeild, hafa stofnað reikning til styrktar Valgerði og fjölskyldu hennar á þessum erfiðu tímum.

Reikningsnúmer 116-05-64303 Kennitala 300586-3099

 

Og ég vil endilega biðja alla að hugsa vel til hennar Völu og auðvitað Óskars og Hildar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 13:10:11 / gloa

bústaður

Salou dömur. til stendur að hittast á akureyri og vera í bústað í kjarna helgina 27-29 júlí ef allir komast. hvernig er statusinn á ykkur þessa helgi ? Verð að fá svar sem fyrst dömur ;)

kemur blogg um danmörku og myndir um helgina ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 20:10:00 / gloa

úfff

langur og erfiður vinnudagur að baki. byrjuðum um 12 í dag og skriðum heim klukkan 8 eftir svaðalega erfitt búðarráp. Tek eftir því núna afhverju það er fínt að hafa pabba eða jóhann með sér í búðir. Ég og Gulla ráðum ekki við það að bera þetta allt saman!!

Ég er búin á því en á alveg ótrúlega mikið af fallegum hlutum 


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 09:16:05 / gloa

Nú er þetta að bresta á

Jebb síðasti vinnudagurinn. er að fara út ekki á morgun heldur hinn. Er að vinna til 12 og fer svo á akureyri... eða þegar ég klára að pakka niður þar sem mig dreymdi doldið mikið sem ég var að gleyma. þetta reddast

Hlakka til að sjá alla!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5